ÍK DROTTNINGAR 2010!
21.11.2010 | 18:18
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bara smá hugmynd ef einhver er í vandræðum með að finna hatt á sig :)
15.11.2010 | 14:52
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Árshátíð Ík 2010!
14.11.2010 | 18:16
Kæru blaksystur og þjálfari!
Nú er allt að verða klappað og klárt fyrir hina langþráðu árshátíð sem verður að þessu sinni haldin heima hjá Helgu Steinunni, og koma hér meðfylgjandi nokkrar bráðnauðsynlegar upplýsingar varðandi kvöldið góða:)
Árshátíð
verður haldin að Tröllaborgum 12 í Grafarvogi.Mæting stundvíslega klukkan 19.30.
Þema
Allir fínir og sætir + höfuðföt(hattar, hárskraut osfrv).
Fordrykkur
SMASS í sprite og jarðarber.
Matseðill
Surprise surprise , ekki alveg komið á hreint.
Drykkjarföng
Við stöllur ætlum að bjóða uppá kokteil eins og fram hefur komið, en ef fólk ætlar sér að drekka örlítið-mikið meira í veislunni, þá endilega koma með með sér , væri gaman að búa til kokteila og drykki að hætti ÍK.
Skemmtiatriði
Öll heimatilbúin skemmtiatriði vel þegin, við vitum að þið lumið á einhverju skemmtilegu er það ekki?
Staðfesting
Þeir sem ætla koma og gleðjast með okkur verða að staðfesta komu sína eigi síður en á miðvikudaginn 17.nóv. Kostnaður á mann er 3000kr og ef þið vilduð vera svo vænar að leggja inn á reikning Dísu fyrir miðvikudaginn 17.nóv 2010. Reikningsnúmer hennar er: 318-26-0866 kt: 280866-5639 . Endilega sendið póst á disa@framnes.is eigi seinna en á miðvikudaginn.
Góða skapið skylda
Hlökkum til að sjá ykkur í megastuði NEFNDIN.
Áfram ÍK
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kveðjupartý!
18.9.2009 | 17:45
. Er einhver til í að taka að sér að halda partý? Endilega látið í ykkur heyra kveðja HrafnhildurBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Uppskrift
20.5.2009 | 08:19
Hæ
Ég fékk margar fyrirspurnir um kökuna sem ég bakaði í eftirrétt.
Datt í hug að setja hana hérna inn.
Ekkert mál að gera og alveg snilldargóð.
Súkkulaðikaka með pekanhnetum
Heildar bökunartími 30 mínútur 4-5 msk smjör100gr suðusúkkulaði3 egg3 dl sykur1 1/2 dl hveiti1 tsk salt1 tsk vanilludropar Bræðið smjör og súkkulaði yfir vatnsbaði.Þeytið egg og sykur og blandið vanilludropum saman við.Því næst er þurrefnunum blandað varlega saman við eggjablönduna.Að lokum er öllu blandað saman, deiginu hellt í form og kakan bökuð í 15 mínútur við 175°C. Á meðan kakan bakast til hálfs er eftirfarandi hitað í potti:4 msk smjör1 dl púðursykur2 msk rjómirjóminn er settur síðast og blandan látin sjóða í ca mínútu. Þegar kakan hefur verið inni í fimmtán mínútur er hún tekin út. Stráið innihaldi úr einni dós af pekanhnetum/valhnetum yfir kökuna og hellið púðursykurskaramellunni yfir.Bakið áfram í aðrar 15 mínútur.Þegar kakan er full bökuð er söxuðu súkkulaði stráð yfir, eftir smekk. Persónulega finnst mér betra að hafa minna svo karamellan njóti sín. Kakan er best ný bökuð en ef hún er kæld storknar súkkulaðið og hún verðureins og konfekt;)Berið fram með ís eða þeyttum rjóma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Takk fyrir síðast
18.5.2009 | 17:51
Hæ Hæ Skvísur
Þetta var nú heldur betur skemmtilegt partý. Vona að allir hafi skemmt sér vel.
Vonandi koma myndir á vefinn eða einhver getur sett hér inn.
Kveðja
Snædís
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tjúttið í kvöld
15.5.2009 | 10:54
Nú styttist í þetta. Eru ekki allir búnir að draga fram gömlu kúrekaskóna og rifja upp línudanssporinn?
Við erum búnar að dekka allt upp og byrjaðar að smakka til fordrykkinn þannig að við verðum extra hressar í kvöld.
Við minnum á að öllum er velkomið að trana sér fram með skemmtiatriði eða danskennslu og við væntum þess að allir skemmti sér vel.
Munið að það er kúreka þema þannig við skulum skilja spari dressið eftir heima og hafa þetta frjálslegt.
Kveðja
Skemmtinefnd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Árshátíð ÍK 15.maí
11.5.2009 | 22:04
Kúrekahátíð ÍK verður haldin Dalvegi 6-8 (Kraftvélar (Sandvíkurhúsið)).
Dagskrá:
19.30 Mæting að Dalvegi
19.40 Kúrekasnafs
20.00 Forréttur að hætti Bjarna kúrekakokks
Indjánakjúklingasalat og Lukku Láka lax
20.30 Aðalréttur sléttunnar
Miklagjúfurslamb með salati og nýbökuðu byssubrauði
21.15 Eftirréttur að hætti kúrekakellanna
Súkkulaðiunaður með rjóma umumumumumumumum
Bjór af krana verður í boði skemmtinefndar meðan birgðir endast.
Önnur drykkjarföng þarf fólk að taka með sér.
Að loknu borðhaldi verður glens og gaman. Öllum frjálst að trana sér fram.
Dresscode: Kúrekafatnaður að eigin vali.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja HíHa Híha
Skemmtinefnd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)










